Out
Ef minnsti vafi leikur á hvort af einhverjum ástæðum sé heppilegt að bjóða eða þiggja far er eindregið mælt gegn því, en þeir sem kjósa að skrá laust far eða ósk um far á Farþegavefnum skuldbinda sig til að hlíta neðangreindum skilmálum:
A) Ökumaður
Ökumaður skal vera mættur og hefja för á ökutæki sínu frá þeim stað og á þeim tíma sem um var samið enda sé farþegi þá reiðubúinn. Hann skal segja til nafns og bjóðast til að sýna farþega ökuskírteini sitt áður en ferð hefst ef þess er óskað. Ökumaður skal vera við góða heilsu og sýna fulla einbeitingu við aksturinn. Hann skal sýna farþega jákvætt viðmót, tillitssemi í samræðum og ekki vera með áreitni, óhæfilegan áróður né sníkjur. Ökumaður ræður hvort kveikt er á útvarpi í ökutækinu eða á öðrum hljómflutningstækjum, hvort miðstöð sé í gangi, gluggar opnir o.s.frv. þótt þess sé vænst að það sé gert í fullri sátt við farþega. Hann skal ekki vera með heyrnarskjól eða annan búnað sem gerir það að verkum að hann heyrir ekki til farþega.
Ökumaður skal forðast að reykja meðan farþegi er í ökutækinu og alls ekki ef barn er farþegi. Þá skal ökumaður stilla neyslu matar eða sætinda í hóf og ekki tala í síma nema með handfrjálsum búnaði.
Ef ökumaður hefur áskilið sér gjald fyrir aksturinn skv. viðmiðunargjaldskrá Farþegavefsins skal hann gefa farþega upp kílómetrastöðu í upphafi og lok ferðar.
Ef ökumaður forfallast eða ekki getur orðið af ferð af óviðráðanlegum ástæðum skal hann láta þann sem ætlaði að þiggja far vita símleiðis svo skjótt sem auðið er.
B) Ökutækið
Ökutækið skal vera í góðu lagi, með gildar tryggingar og skoðun skv. umferðarlögum. Það skal vera hreint, lyktarlaust og snyrtilegt að innan og helst einnig að utan. Nægilegt rými skal vera fyrir farþega og sem minnst af lausum munum í ökutækinu. Ekki skulu aðrir farþegar vera í ökutækinu en komið hefur fram. Dýr skulu ekki vera í ökutækinu nema það hafi áður komið fram.
C) Aksturinn
Miða skal við að ekin sé stysta eða greiðasta leið sem almennt er fær milli áfangastaða á viðurkenndum akleiðum. Ökumaður skal að hámarki gera hlé á akstri fimmtung þess tíma sem áætluð ferð tekur. Hann skal fara að gildandi umferðarreglum hverju sinni og haga akstri í samræmi við aðstæður. Hann skal sýna fulla aðgát í akstri og aka þannig að farþegi hafi ekki ástæðu til að óttast um öryggi sitt eða verði fyrir óþægindum vegna aksturslags, t.d. að bremsað sé snöggt, ekið nærri ökutæki á undan, ekið hratt á holóttum vegi, ekið inn á miðjum vegi eða á ystu brún hans o.s.frv.
Ekki er gert ráð fyrir að farþega sé ekið heim að dyrum nema um það semjist en miða má við t.d. næstu biðstöð strætisvagna eða áætlunarbíla. Ekki skal þó stöðvað fjær áfangastað farþega en um 500 metra og ávallt skal miðað við að stöðvað sé innan þess póstnúmers sem áfangastaður tilheyrir.
D) Farþegi
Farþegi skal vera tilbúinn á þeim stað og tíma sem um er samið og er ekki gert ráð fyrir að beðið sé eftir honum. Algert skilyrði er að farþegi sé ekki undir áhrifum áfengis, vímuefna eða lyfja. Farþegi skal vera hreinn til fara og heill heilsu. Farþegi skal segja til nafns áður en ferð hefst. Hann skal gæta hófs í samræðum við ökumann til að trufla ekki einbeitingu hans við aksturinn og forðast að skipta sér af akstrinum. Hann skal ekki vera með áreitni í garð ökumanns eða annarra farþega ef einhverjir eru, óhæfilegan áróður eða sníkjur. Farþega er með öllu óheimilt að reykja í ökutæki. Hann skal almennt ekki neyta neins meðan á ferð stendur án sérstaks samþykkis ökumanns nema hugsanlega sælgætis og óáfengra drykkja í traustum umbúðum.
Ef farþegi er einn skal að jafnaði miða við að hann sitji í farþegasæti fram í. Farþegi skal ávallt vera spenntur í öryggisbelti hvar sem hann situr í ökutækinu. Farþegar skulu stilla símtölum í hóf eftir því sem kostur er meðan þeir eru farþegar. Ekki er gert ráð fyrir að farþegar hafi með sér annað en handfarangur í skemmri ferðum (innan við 30 km) nema sérstaklega sé um það samið.
Að jafnaði skal farþegi sjálfur nálgast farangur í sérstökum farangursrýmum lok ferðar.
Gengið skal frá því áður en akstur hefst hvort greitt skal fyrir farið.
E) Greiðslur
Ef samið er um greiðslur skal hámarksgjald vera það sem er tilgreint er í gjaldskrá Farþega-vefsins. Farþegi skal greiða ökumanni það í reiðufé eða sjá til þess að það verði millifært inn á reikning, sem ökumaður gefur upp ekki síðar en í lok ferðar. Að jafnaði skal farþegi ekki eiga rétt sérstakri kvittun fyrir greiðslu.