Gjaldskrá Farþegavefsins

A)  Fullt verð.  Ef farþegi er einn í bíl.  

Startgjald  kr. 250 - kr. 20 pr. km fyrstu 10 km - kr. 10 næstu 90 km  -kr. 5 á km eftir það. 
Gjaldið hækki þó alltaf í næstu  50 eða 100 kr. fyrir ofan.
Dæmi:      9 km  250 + 180 (9 x 20) = 430 = 450 kr
Dæmi:  100 km  250 + 200 + 900 = 1.350 kr.
Dæmi:  450 km  250 + 200 + 900 + 1.750 = 3.100 (Rvk – Ísafjörður)
Dæmi:  380 km  250 + 200 + 900 + 1.400 = 2.750 (Rvk – Akureyri)

B)  Fleiri en einn farþegi - hvor eða hver borgar 75% af A

C)  Ungmenni undir 18 ára - greiði 50% af A

D)  Far miðað við reglulegan akstur (t.d. til og frá vinnu)

Startgjald  kr. 200 - kr.  15 pr. km  (fyrstu 10 km) -  kr. 10 eftir það
Dæmi:   8 km = 320 kr -  Hækki í 350
Dæmi:  15 km = 425 kr. -  Hækki í 450
Ef ekið er fram og til baka sama dag greiðist aðeins eitt startgjald.
Dæmi:   2 x 8 km = 16 km  200 kr + 150 kr. + 60 kr. = 450 kr. 

Miðað er við að greitt sé við lok ferðar í reiðufé, eða tryggt að fjárhæðin hafi verið millifærð inn á reikning ökumanns nema um annað hafi verið sérstaklega samið.

Áformað er að Farþegavefurinn annist millifærslur gjalds hjá skráðum ökumanni og farþega sem þess óskar.  Í framhaldinu getur farþegi greitt með því að senda bílnúmer (fastanúmer) , kílómetrafjölda  og verðflokk í SMS til Farþegavefsins og verður skuldin þá færð af greiðslukorti hans inn á reikning Farþegavefsins sem greiðir beint inn á reikning ökumanns.   Við þessa þjónustu leggst 10% kostnaður ofan á gjaldskrána og 10% dragast af þóknun ökumanns.